Óskar Páll Elfarsson

www.oskarpall.com

14.04.2009 19:13:00 / oskar

Nu snakker jeg kun dansk !

Verst hvað ég er fjári slakur í henni ... dönskunni !

Páskafríið var æðislegt, á leiðinni norður tókum við Hrund með okkur hann Daníel Starrason, en Starri föður hans er einmitt bróðir Gauks. Það svosem skiptir engu máli, mér finnst það bara fyndið. Fyrir norðan byðu Steinþór og Sonja (Steinþór er frændi Hrundar, og Sonja konan hans). Þau áttu gestaherbergi, fullt af gestrisni, lögg af rauðvíni og tvö matarboð handa okkur. Ásamt því að vera alveg frábær á allan annan hátt !

Við hittum einnig slatta af hressu liði þarna fyrir norðan, suma þaðan, aðra annarsstaðar frá ...

Eitt af því sem við tókum upp á að gera var að fara í smá ljósmyndarúnt. Þetta varð eiginlega meiri galsa-, skemmti-, nestis-, páskaeggs-, þröngt-mega-sáttir-sitja-rúntur, frekar en endilega mynda-rúntur.

Á ToDo lista okkar Hrundar stendur skýrum stöfum "að baða sig í Grjótagjá fyrir áttrætt" þar sem hún var of heit síðasta sumar, en fer kólnandi. Á þessum sama ToDo lista hefur verið krotað yfir þetta atriði. Við ætlum samt klárlega að endurtaka það! Ég held að þessi mynd segi meira um æðislegheitin en nokkur orð ...


Hrund stingur tánum í Grjótagjá




Með í för var líka mikill meistari sem heitir Gísli Dúa, hann er heimsfrægur á Akureyri og víðar, fyrir að vera klikkaður. Ég elska það! Það þarf svosem ekkert að telja upp allt sem var brallað eða hlegið að, en einhverra hluta vegna fæðast oft smá rugl myndir þegar Gísli er á svæðinu. Í "ljósmyndarúntinn" fannst mér mjög mikilvægt að taka með mér golfkylfu, Gísla fannst mikilvægt að vera með hatt. Þegar bíllinn stöðvaði síðan við Goðafoss fannst öllum góð hugmynd að ég stæði 2 metra frá fossinum sjálfum, úti í Skjálfandafljótinu, á nærbuxunum og færi í golf.... Kuldinn var held ég þess virði :)



"Extreme golfer" í Goðafossi (mynd: Gísli Dúa)


Við komumst að vísu ekki á bretti þessa páskana, en Brynju-ísinn bætti það upp, eða sko, ekki alveg, brettaferðin verður pottþétt farin síðar!

Við mættum í höfuðborgina kl 17:02 á páskadag að skila Danna af okkur, kl 17:03 löggðum við Hrund síðan af stað í sveitina mína. Þar byðu okkar öll familían, æðisleg páskamáltið hjá múttu, bakkelsi hjá ömmu, níu stykki af þriggja vikna gömlum labradorhvolpum, gisting á hverjum bæ og síðast en ekki síst, bleikmálaður páskahani í hænsnakofanum !

Snilldar páskafrí og æðis fólk allsstaðar ! 



En sko.... þetta er EKKI NEITT .... miðað við hádegishléið mitt í dag!

Þar kemur sko dönskukunnáttuleysið mitt inn í umræðuna. Hrund dró mig út að éta eitthvað í hádeginu og mætti svo allt í einu með pakka handa mér. Ég varð steinhissa, enda ennþá næstum 4 vikur í afmælið mitt! En nei, það skipti ekki öllu, pakki var það heillin!

Ég varð ofur spenntur og ekki hefur spennan minnkað síðan. Ég vissi auðvitað að Hrund er ótrúleg og æðisleg og frábær og allt það og meira til, en þessu átti ég ekki von á! Hún var búin að redda fríi handa mér í vinnunni á fimmtudag og föstudag. Hún var búin að láta tékka á því hvort passinn minn væri enn í gildi, hún var búin að fresta myndatöku helgarinnar, hún var búin að leigja íbúð í köben og hún var búin að kaupa 2 flugmiða til kóngsins köbenhavn.....   !

Ég hætti ekkert að brosa í margar vikur eftir þetta og er algjörlega orðlaus af gleði !




Ég er á leiðinni Danmörk !


Mamma og pabbi voru ekki síður æðisleg og gáfu mér líka snemmbúna afmælisgjöf, gjaldeyri svo ég myndi ekki svelta í kreppunni á dönsku gengi.

Vá vá vá vá  hvað mér finnst þetta ææææðislegt !

Ég er semsagt að fljúga út á aðfaranótt fimmtudags, með 40 klst fyrirvara, út í sólina í Danaveldi, sjáumst !


Óskar kveður, kátur kútur !




» 15 hafa sagt sína skoðun

08.04.2009 18:17:01 / oskar

Páskafrí !

Síðan síðasta blogg var skrifað er liðið heilt ár !

Semsagt, það var vor, kom sumar í korter, svo kom hellings  vetur ! Vorið er komið og eiginlega sumar á nýjan leik... Ég hef komist að því að veðrið er ekkert óstabílt hérna á Íslandi, við einfaldlega höfum um það bil 70 árstíðir á ári !


Raunskyggni: 3 metrar   -   Ímyndun: óendanleg

Fyrir tveimur helgum tók ég Hrund í óvissuferð, hún mætti með svefnpokann en endaði á því að gista á hótelsvítu í Reykholti. Fullkomin helgi á allan hátt, heitapottsferð, grillað í snjókomu, boomerangkast og margt fleira. Lífið var unaður ! Ég hef að vísu kynnst betra veðri í vorferðalagi ...


Gobbi, Gobbi og Gobbi

Það var samt eiginlega fyndið hvað veðrið var ógeðslegt á laugardeginum, og ennþá fyndnara hvað það var ótrúlega gott á sunnudeginum.

Ég er allavega að detta í ofsalegann vor gír. Ég er kominn með vorfreknur, ég er farinn að fara oftar í sund, ég er búinn að gróðursetja sólblómafræin og á orðið tvenn sólgleraugu. Það styttist í stuttbuxurnar, enda var farið í hackysack  í vinnunni í dag, og það er sko bein tenging við sumarið.

Um daginn ætlaði ég að fara minnast á það við Hrund hvort hana langaði ekki að kíkja til Akureyrar um páskana, rétt áður en ég komst að þeirri umræðu spurði hún að því sama. Þetta var því auðveld ákvörðun.... Ljósmyndarúntur um Mývatn, jarðböðin, góður matur á greifanum, Brynju Ís, fyrsta snjóbrettaferð ævinnar og fullt af æðislegu fólki. Þessir páskar verða hreint æðislegir held ég barasta.

Framundan eru síðan endaleysur af skemmtilegum vikum ! Eftir páskahelgina kemur stutt vinnuvika, einhversstaðar læðist inn fimmtudagsfrí á sumardaginn fyrsta, annar í hvítasunnu er þriggja daga frí helgi, 1. maí kemur upp á föstudag og svo mætti lengi telja... endalausir stakir frídagar er leið dagatalsins til að segja okkur að fara koma okkur í vorfílinginn.

Annað stórt atriði vorsins er að sjálfssögðu afmælið mitt, í ár verður það stórt, stór tala og stór veisla. Ég mæli sterklega með því að ÞÚ takir frá laugardaginn 9. maí og látir þig ekki vanta! Meira um það síðar...


;:Óskar:;  þér góðra páska !




» 4 hafa sagt sína skoðun

26.03.2009 23:15:21 / oskar

vá vá vá vá

Hvernig getur tíminn fræðilega liðið svona hratt ?

Jú svarið er auðvelt, það er allt svo gaman. (búið ykkur undir viiirkilega slæman brandara) Marsmánuður er búinn að klárast jafn hratt og mars stykki á leikskóla ! (aha, told you so!)

Sem betur fer fyrir þetta sálartetur manns þá þýðir mars mánuður sólgleraugu í vinnunna, sem er geggjað. Það er ekkert smá sem munar um að vakna í sól ! Óneitanlega er farið að styttast í vorið, einn og einn dag stelst maður til að mæta á bolnum í vinnunna, sumarfrí skipulagningar eiga sér stað og hackysack boltinn er kominn ofaní skúffu í vinnunni, tilbúinn fyrir opnunarleikinn sinn, sem verður eflaust sama dag og reykingaliðið ákveður að taka pásuna sína úti, en ekki lokað inni í ógeðslegasta klefa veraldar.

Talandi um að vera innilokaður í ógeðslegum klefa, ég fann um helgina að ég VARÐ að komast út úr Reykjavík. Tilfinning sem kemur oft yfir mig og það eina sem ég þarf að gera er að hlíða bara og drullast út fyrir borgarmörkin. Ég hef enn ekki verið svikinn af því að hlusta á þessa tilfinningu og taka mark á henni. Ég náttúrulega er svo óendanlega heppinn að eiga heila risa sveit rétt hjá borginni sem er æðisleg heim að sækja hvenær sem er. Ég er líka svo ótrúlega heppinn að eiga æðislega kærustu sem virkilega nennir með mér í svona rugl, hvenær sem er !


Hrund kann að brosa, þó svo að rigni

Helgin fór þessvegna í það að sveitast soldið. Mamma gaf okkur grillkjöt sem var æðislegt, pabbi var búinn að græja heita pottinn og búa til stjörnubjartan himinn þegar við renndum í hlað, amma var búin að baka köku og spelt brauð, afi bauð okkur til messu þar sem hann var að syngja með kórnum (við að vísu höfðum ekki tíma til að þiggja það).


Miðdalskirkja er nú ekki stór, enda afi ekki í stærsta kór landsins

Við keyrðum um ýmsar slóðir þarna í kring og skoðuðum umhverfi sem leið manns liggur ekki alltaf um. Við reyndum að keyra upp að Laugardalsvöllum en snérum við eftir 52 metra vegna ófærðar. Við keyrðum um hjólhýsahverfið á Laugarvatni þar sem nánast engu munaði að okkur tækist að læsa okkur inni í. Það hefði verið skemmtilega vandræðaleg. Við hittum hund sem var rosalega feitur, stuttu seinna var hann aðeins minna feitur og með einn hvolp, stuttu seinna var hann ennþá minni feitur og með 9 pínulitla (með einu t) hvolpa hjá sér. Sennilega eitt af því sem mér finnst skemmtilegast við sveitina, að líf skapast og verður til svo oft þarna. Ekkert smá gaman að halda á svona pínulittlum hvolp sem hvorki heyrir né sér, en ratar alltaf beint á spenann.

Við skoðuðum líka kirkjuna í Miðdal sem mér finnst alltaf soldið vænt um, hún er svo lítil og persónuleg einhvernveginn, auk þess á ég auðvitað margar sterkar minningar þaðan, góðar og erfiðar. Ég dró Hrund með í göngutúr upp bæjargilið þar sem virtist skemmtilegt að ganga í, þar við komumst mjög fljótlega að því að það er bara vonlaust að ætla sér að rölta uppeftir því, þannig við einfaldlega slepptum því. Það var svosem í anda helgarinnar, við gerðum það sem við vildum og eins og okkur hentaði..... æðislegt !


Bæjargilið í Miðdal

Við enduðum helgina á því að fara síðan í leikhús á Kardemommubæinn. Mér fannst það æðislegt og frábært og soldil nostalgía, en fyndnast var samt að snúa sér til hliðar og sjá varirnar á Hrund hreyfast með orðum leikarana ....

Með öðrum orðum, fór helgin í að skottast, dunda, leika sér og fara á barnasýningu og það var akkúrat það sem mig langaði !

Annars er margt annað skemmtilegt í gangi líka
* næsta helgi er leynihelgi, þar sem ég ætla að fara með Hrund eitthvert sem hún fær ekki að vita að gera eitthvað sem kemur í ljós
* helgin eftir það er páskahelgi, sem fer í að fara norður á Akureyri að leika, það verður stuð!
* ég ákvað að prófa að hlaupa 10km, og komst að því að það er ekkert mál
* ég fer að nálgast það að vera búinn að skipuleggja 5 vikna sumarfrí, sem verða 35 dagar af himnaríki
*mig langar í Kólus páskaegg
* tvær ljósmyndir frá mér eru á sýningu Blaðaljósmyndarafélags Íslands í Gerðarsafni
* það fer að styttast í afmælið mitt, þér er boðið, ertu búin að finna gjöf ?

og svo er margt í viðbót líka að frétta og margt skemmtilegt að gerast, enda vorhugur í allri þjóðinni núna....


Lifðu lífinu lifandi, kv Óskar




» 17 hafa sagt sína skoðun

10.03.2009 12:16:45 / oskar

10. mars

Fyrir ári síðan var ég staddur á Gústafs Adolfs torgi í Malmö, það var árshátíð Birtíngs. Veðrið hélt hátíð og bauð okkur upp á að vera úti á stuttermabolnum þegar ég settist í grænt grasið og sleikti ís sem ég hafði keypt á Mc'Donalds.




Það var á þessu stutta mómenti sem ýmislegt gerðist, flest óvænt. En eitt er víst að þetta var klárlega fyrsti dagur vors. Fyrir vikið verður dagurinn haldinn hátíðlegur héðan í frá sem fyrsti vordagur og gefur fyrsta sumardegi ekkert eftir ! Enda verður fagnað á eftir með ferð út í ísbúð.

Annars er gaman að rifja þessa ferð upp, enda ekkert smá skemmtilegt fólk sem gerði þessa ferð að einhverju stórmögnuðu. Vísa kortið mitt hefur aldrei kynnst öðru eins og sjaldan hef ég gert jafn margt skemmtilegt á svona stuttum tíma. Plús það að kynnast öllum þessum snillingum úr vinnunni almennilega....





Ég veit ekki alveg hversu viðeigandi það er að halda upp á fyrsta vordaginn í snjó og ógeði, þessvegna fékk ég allavega sólina í lið með mér. Ég reyndar reyndi að taka forskot á sæluna og brunaði í Seljavallalaugina í hópi Rassavinafélagsins. Mikið stuð og mikið gaman, mikið rok og mikill kuldi, fáar myndir og EKKERT sund .... Laugin var einfaldlega allt of köld. Bömmer !





Ég mæli allavega með því að fara út á eftir að sleikja ís og láta sólina sleikja ykkur á meðan. Njótið dagsins og eins og einhver sagði áðan, verið awesome !

kv, Óskar-sem-hlakkar-orðið-ofsalega-til-sól-og-sumars





» 12 hafa sagt sína skoðun

06.03.2009 21:31:20 / oskar

Heimurinn er stútfullur af ....

.....  engu



eða hvað ?






Ætli það sé eitthvað þarna ?


www.oskarpall.com







» 15 hafa sagt sína skoðun

03.03.2009 01:25:29 / oskar

Að skoða fólk...

... getur verið alveg ótrúlega gaman. Síðustu tíu dagar hjá mér hafa farið í það huglæga "verkefni" að fylgjast með fólki. Skoða það, hvernig það hegðar sér og hvernig það er yfir höfuð. Ég hef komist að því að það er stór skrítið, á allan hátt !

Þetta byrjaði allt einn föstudag, hann byrjaði sem venjulegur föstudagur en þegar að vinnudagurinn var að líða undir lok flæddi eitthvert ótrúlegt þokuský yfir Reykjavík. Ég gat á engan hátt verið inni í svona skemmtilegum aðstæðum og fór þessvegna út. Einn með myndavélina, ekki til að finna mig, heldur frekar til að reyna að týna sjálfum mér.


Meira að segja Reykjavík var næstum því týnd ...


Á þessu ferðalagi mínu fór ég á rölt um Ægissíðuna, sólin var að setjast, ungir krakkar léku sér í fjörunni, tveir skokkarar mættust á stígnum, ég stóð þarna með myndavél og annar strákur stutt frá með sama apparat í höndunum. Allt í einu sé ég svona 60-70 ára gamla konu í krumpu-skíða-kulda-galla arka í áttina til mín. Hún spurði mig, þar sem ég stóð á klettagarðinum við ströndina hvort ég væri að skoða seli. Nei sagði ég, en fékk þá samt fyrirlestur um að þeir væru eiginlega hættir að vera þarna og það væri mikið auðveldara að finna þá á Seltjarnarnesinu. Ég var ennþá í því verkefni að reyna að týna mér þannig ég svaraði þurrt og leiðinlega, ég beið eftir að hún myndi þagna, fara, og leyfa mér að upplifa þokudaginn sem var búinn að tæla mig út í göngutúr. Það gerðist hinsvegar ekki, ég fékk fyrirlestur um hitt og þetta. Það endaði með því að ég arkaði bara í burtu, það dugaði hinsvegar ekki heldur ! Konan elti mig þar til ég einfaldlega settist upp í bíl... Ég beið þar til hún var farin og rölti aftur niður að sjó, hverskonar fólk skilur ekki að stundum vill maður spjalla við sjóin, en ekki ókunnugt fólk ....



"Nei... ég er ekki að skoða seli"


Þessi kona fékk mig soldið til að hugsa hvað fólk getur verið ólíkt, hvað margir eru ólíkir mér. Í vikunni skellti ég mér síðan í bíó, það var ekki síður áhugavert. Myndin sem farið var á er ein mesta stelpumynd sem ég hef séð, "He's just not that into you". Ég mætti talsvert á undan Hrund og Ernu og horfði á fólið streyma inn í bíóhúsið. 98% viðstaddra voru stelpur. Einstaka kærastar fóru með skvísunum sínum á myndina en síðan komu 2 strákar saman. Það var eitthvað við það sem var svo forvitnilegt. Ætli þetta hafi verið hommar, ætli þetta hafi verið strákar með svona ólíkan kvikmyndasmekk frá flestum öðrum. Létu þeir kannski bara ekki einhverjar steríótýpuhegðanir stjórna því sem þá langaði að gera. Eða voru þetta kannski bara tveir félagar sem fóru á alveg kolranga mynd og komu hundfúlir út. Kannski er það ég sem var stórfurðulegur að virkilega pæla í þessu ...

Myndin byrjar og pískrið með. Ég held ég hafi aldrei orðið var við jafn mikil viðbrögð úr bíósal áður. "Neeeeei, ekki gera þetta", "ó mæ god" og "awww" voru línur sem heyrðust oft og þegar að bónorðið kom (sem var óendanlega fyrirsjáanlegt atriði) þá varð allt vitlaust í salnum. Hrund fékk kjánahroll á meðan megnið af stelpunum skríktu af gleði og spenning. Klárlega ein eftirminnilegasta bíóferð sem ég hef farið í, ég meira að segja hafði virkilega gaman að henni, þó svo að myndin væri ekkert spes...

Á laugardaginn kláraði ég síðan þessar athuganir mínar á furðulegu fólki þegar ég röltu um miðbæinn í góða veðrinu. Laugarvegur með búðarstoppum, rölt um höfnina og Kolaportið og fleira til. Allstaðar voru einhverjar týpur, fólk sem var þess virði að fylgjast með. Allur regnboginn af fólki sem hvert og eitt var á einhvern hátt frábrugðið. Það er alveg sama hvað maður sá marga eftirtektarverða einstaklinga, það var eitthvað svo erfitt að flokka það. Eitthvað svo erfitt að greina það... Ég held hreinlega að ég haldi mig áfram við að mynda landslag, fólk er svo hrikalega ótrúlega óendanlega flókið !


Eða er ég kannski bara svona einfaldur ?






» 12 hafa sagt sína skoðun

23.02.2009 16:20:45 / oskar

Dabbi kóngur

Ég heyrði umræður um helgina sem voru á þennan veg:

"En hvert er þitt læknisfræðilega álit á því hvað er að Davíð"
"Thja, hann er ekki geðklofi, allt svo skitsófrení, vegna þess einfaldlega að ......."

Ég viðurkenni það, ég datt út úr þessum umræðum. En ég ákvað að skoða vandamálið bara myndrænt og svo ætla ég að leyfa ykkur að dæma um það hvort þarna séu á ferðinni tveir persónuleikar.




Tvær hliðar Dabba Kóngs



Njótið dagsins ....




» 13 hafa sagt sína skoðun

20.02.2009 13:30:04 / oskar

Vetur, sumar, vor og haust...

... áfram líða endalaust !

Undanfarnir dagar, vikur, mánuðir .... Það er allt of margt að gerast til að nenna að tala um það allt. Þegar ég er spurður hvað sé að frétta hef ég engin svör, en það er samt alltaf nóg að gerast.

Það sem af er árinu er ég búinn að drekka þennan vetur soldið í mig og reyna að njóta hans. Ég hef verið duglegur að gabba myndavélina mína og Hrund með mér í sveitina, burt frá hávaða höfuðborgarinnar, og njóta lífsins.


Á rölti við Kaldárhöfða

Eins og allir sem þekkja mig vel vita, þá á ég tvær sveitir stutt frá Reykjavík og ég veit sko algjörlega hvernig á að nýta sér það. Snjór og heiðskýr himinn er líka ekkert til að skemma fyrir. Kuldinn undanfarið og snjórinn vakti í mér myndavélabakteríuna sem dottar stundum yfir vetrartímann.


"Ömmuhús", sem pabbi og mamma eiga í sveitinni

Ekki nóg með það síðan að myndavélabakterían sé vel vöknuð hjá mér, heldur er mér búið að takast að smita Hrund af henni líka. Ég lánaði henni gömlu vélina mína og skvísan er búin að versla sér linsu og fara á myndvinnslunámskeið. Þetta var auðvitað ofboðslega lúmskt hjá mér að fá hana til að hafa áhuga á því sama og ég. Það er nú ekki amalegt að geta haft svona afsökun fyrir að "þurfa" að skjótast eitthvað út í náttúruna og njóta þess sem fyrir augu ber...

Haffa félaga mínum tókst að ata mér út í þá vitleysu að kaupa mér líkamsræktarkort. Nú er bara að reyna að mæta eitthvað og nýta þetta frekar en að vera einhver styrktaraðili. Það er svosem ekki til frásögu færandi nema fyrir það hvað hann gat hlegið mikið að mér þegar við mættum í fyrsta tímann. Ég var víst eitthvað smá klaufalegur bæði í lyftingatækjum og á hlaupabrettinu, þar sem ég hafði aldrei prófað svona rugl aftur. Mikið hlakka ég samt til þess að fara sjá smá af þessari sól og stunda körfubolta og fótbolta úti í sumarveðri..... já takk !



Stundum skilur það mikið meira eftir sig að fara út um miðja nótt í Hvalfjörð með frænda sínum að myndast eitthvað í tunglsljósinu
frekar en að sofa vært á koddanum heima.



Þar sem ég var duglegur að draga Hrund með í sveitina fékk hún líka að vera dugleg að draga mig með sér í hitt og þetta. (Orðið draga er hér notað í merkingu að bjóða eitthvað sem er þegið með þökkum). Matarboð, skírn og brúðkaup var allt tekið á einni helgi þegar sú næsta var tekin í leikhús, þorrablót og sveitaferð. Það er eiginlega bara búið að vera fáránlega skemmtilega mikið um að vera undanfarið, akkúrat á þessum árstíma þar sem "ekkert" er að gerast.  Það er gott að eiga góða að og á meðan þessi dimmasti árshluti gengur yfir þekki ég greinilega nóg af fólki sem er duglegt við að skemmta mér og halda manni í góða skapinu.

Það er hinsvegar ótrúlega notalegt að finna að það er farið að vera bjart þegar maður mætir á morgnana í vinnuna og það er ekki laust við að maður sé farinn að hlakka til vorsins. Svo mikið reyndar að ég er búinn að smala með mér æðislegu fólki til að halda smá grillveislu á morgun. Það hefur nú verið sagt um mig að mér finnst gaman að grilla, og veistu, ég held það sé rétt. Fyrsta grill ársins í febrúar er nýtt persónulegt met, sem vonandi verður bætt strax á næsta ári.



Þjóðvegurinn - 3.000 heimsóknir komnar á vefnum

Fyrir þá sem hafa ekki enn áttað sig á því, þá er hægt að nálgast ljósmyndadótið mitt á www.oskarpall.com, svona fyrir þá sem hafa áhuga á því að sjá hvað ég er að bardúsa og dundast með.


Ég er farinn að njóta restarinnar af þessum föstudegi og koma mér í yndislegt matarboð með 5 æðislegum skvísum í kvöld, og það er bara rétt byrjunin á helginni !

Óskar kveður... með tilhlökkun


ps. Andri Þór, ég sé ÞIG 27. febrúar og ég mæti með pakka, ef ég man !





» 14 hafa sagt sína skoðun

03.02.2009 00:13:54 / oskar

Bubbi Kóngur


Kóngurinn

Bubbi Morthens er án vafa kóngurinn, en í hvaða ævintýri verður seint svarað... Á leið minni heim úr fótbolta ákvað ég að slappa af og setti útvarpið yfir á rás 2. Mér krossbregður við að heyra umræðurnar, þar voru tveir menn að rífast. Annar var útvarpsmaður og hinn var hlustandi sem hringdi inn og vildi vita af hverju útvarpsmaðurinn hafði ákveðið að skipta úr Range Rover og yfir á Land Cruiser. Ekki stóð á svari útvarpsmannsins; "Þér kemur það bara ekki rassgat við!"



Rás2 er nú venjulega með vandaðra efni en kónginn að rífa kjaft

Það fór ekki framhjá neinum að það var kóngurinn sem var í útvarpinu, og enn einu sinni var verið að bera það upp á hann að vera sellát. Mér fannst það að vísu frekar hart, hann eins og aðrir hafa víst rétt til að skipta á milli bílategunda eins og aðrir.

En eins og ég sagði þá er þetta ekki í eina skipti sem Bubbi er kallaður sellát. Það fór fyrir brjóstið á einhverjum að hann lét Glitni og Vodafone bjóða upp á afmælistónleikana sína ...


Three kings

Mér fannst það svosem bara allt í lagi og vel skiljanlegt, alltaf þarf einhver að borga brúsann margumtalaða.

Enn fleiri misstu síðan áhuga sinn á Bubba þegar hann seldi alla sína tónlist til Sjóvá. "Hann seldi sig sem listamann" sögðu margir. "Hann er sellát" sagði fólk. "Ég er búinn að missa álit á honum" sögðu menn og konur.


Þú tryggir ekki eftirá

En ég fyrirgaf honum þetta, allir þurfa jú að hafa í sig og á, ekki satt ?

Ég vil því teljast einn af þeim sem hafa verið frekar umburðarlindir gagnvart kónginum. Ég hoppaði ekki upp til handa og fóta og sagði hann vera selja sig.

Hinsvegar ef við snúum okkur aftur að þessum magnaða útvarpsþætti á Rás2 nú rétt áðan, þá kvaddi kóngurinn faglega. Óskaði landsmönnum alls hins besta, hvatti þá til að hlusta næst og endaði á því að kveðja með nafni. Síðan tekur hann upp á því að spila lag með sjálfum sér sem var þá síðasta lag fyrir miðnæturfréttir!

Núna finnst mér Bubbi vera sellát.....




» 14 hafa sagt sína skoðun

28.01.2009 16:08:32 / oskar

Fight Club

Klárlega ætla ég að fara horfa á þessa snilldar ræmu á nýjan leik, maður er búinn að gleyma passlega miklu til að láta þetta verk koma sér á óvart enn einu sinni !





Tyler Durden: "It's only after we've lost everything that we're free to do anything."

Ætli "Stjórar Íslands" hafi verið miklir áhugamenn um Fight Club ?





Videokvöld coming up, who's with me ?




» 16 hafa sagt sína skoðun

15.01.2009 13:16:05 / oskar

Ekkert tuð, bara lausnir !

Kreppublogg, oj bara !

Á borgarafundi um daginn stóð ein kona upp og spurði þjóðina hvort við værum ekki til í að leggja aðeins meira á okkur en að fara í sunnudagsgöngutúr á Austurvöll og blogga um vandamálið....

Mér fannst hún hafa soldið til síns máls !

Ég ætla því að blogga um lausnir, og vonast til að Geir Hilmar lesi þetta og ég verði valdur af því að Ísland verði velferðarland á nýjan leik.

Lausn 1:
Förum í stríð við Norðmenn. Siglum þangað með allann flotann, herskipin okkar fremst í fylkingunni ásamt táragaslöggunum. Þegar á hólminn er komið skulum við veifa þeim stærsta hvíta fána sem sést hefur. Við gefumst upp fyrir Noregi og leyfum þeim að eiga okkur. Þetta er í raun það sama og íslenskir námsmenn hafa gert árum saman. Þegar lífið verður erfitt og lítið í sparibauknum þá hlaupa þeir heim til mömmu.



Norðmenn myndu eflaust ekki standa sig verr en íslensk stjórnvöld í að passa upp á okkur og þeir geta borgað allt með olíupening sem við skuldum. Ég er hvort eð er aldrei í kaffi hjá forsetanum og það skiptir mig littlu máli hvort hann býr á Íslandi eða í Noregi. Það er síðan ekkert nema rasismi að halda því fram að útlendingar muni stjórna Íslandi eitthvað verr en hver annar.


Lausn 2:
Herskylda hefur tíðkast í mörgum löndum og þykir sjálfssögð. Þegar Íslendingum bráðvantar gjaldeyri finnst mér það liggja beint við að setja á vinnuskyldu hjá ungmennum á Íslandi. Þetta fólk væri látið vinna úti í heimi eins hátt launaðar vinnur og möguleiki er. Þeir myndu síðan búa eins ódýrt og kostur væri og afgangur peninganna væri sendur hingað heim í umslögum, til bjargar þjóðinni ! Einhverjar orður og medalíur væri hægt að gefa þeim sem vel stæðu sig.



Sameinumst sendum þeim
erlendann pening heim
sem minna mega sín
því það er þjóðin mín...



Jæja.... þarna hafiði það, lausnin er komin og nú er bara að gera eitthvað í verki !
Persónulega ætla ég að fara njóta þess að daginn er farið að lengja og maður sér fram á að á næstu vikum geti maður eitthvað farið að munda myndavélina sem er búin að fá ágætis hvíld í vetur. Það kemur allt saman inn á www.oskarpall.com







» 13 hafa sagt sína skoðun

07.01.2009 22:04:10 / oskar

Hr. G. Íra Ffi




Mig langar óendanlega í gíraffa.... ég á afmæli í maí.


Bara svona ef einhver var farinn að pæla....


» 11 hafa sagt sína skoðun

24.12.2008 13:03:32 / oskar

Gleðileg jól !





Gleðileg jól elsku dúllurnar mínar og hafið það sem allra best núna yfir hátíðarnar. Munið að brosa og njóta þess að vera til, alltaf !

Hérna er lítil jólasaga sem ég henti saman og langar að deila með ykkur.






Tímamælarnir


Það er ekki nema einu sinni á ári sem jólin koma. Mörgum finnst að þau ættu að vísu að koma mikið oftar, helst á hverjum degi. En ef svo væri, þá yrðu þau bara svo venjuleg. Þau myndu bara verða eins og hver annar vinnudagur eða dagur í skólanum. Það versta er að þau myndu missa allan þann töframátt sem þau búa yfir.

Eins og allir vita snúast jólin um mikið fleira en bara að fá pakka. Þau snúast um að njóta þess að vera til og vera góð við hvert annað. Þau snúast um að gleðja fólk í kringum sig og upplifa töfrana. Um að hugsa til þeirra sem maður fær ekki að hitta og njóta þess að hitta alla hina.

Þess vegna er það einmitt á jólunum sem fjölskyldur hittast í gríðarlega matarmiklum jólaboðum. Slíkar eru kökurnar og magnið af gómsætum mat að ætla mætti að vonir stæðu til um kraftaverk. Það er nefnilega stundum engu líkara en að borið sé á borð fyrir alla fjölskylduna, þrátt fyrir að sumir séu farnir til annarra heima og aðrir til annarra landa. Enda er bara ósköp eðlilegt að hugsa þannig, því jólin eru nú tíminn þar sem allir koma saman. Afar og ömmur eru sótt á elliheimið og svo kemur Guðrún frænka aldrei í heimsókn nema um jólin. En það er svosem allt í lagi, því hún er bæði skrýtin og eiginlega soldið leiðinleg. Samt væri eitthvað svo óhugsandi að halda jól án hennar. Hann er magnaður þessi kraftur jólanna til að sameina okkur öll.

En það eru ekki bara venjulegar manneskjufjölskyldur sem hittast á jólunum og njóta töfranna sem þau búa yfir. Jólin eru eini tíminn þar sem tímamælarnir hittast. Þér finnst þetta kannski hljóma eins og furðulegt orð yfir klukkur eða dagatöl, en það er rangt. Tímamælarnir eru stór fjölskylda, virt og valdamikil, en þetta er auðvitað ekkert venjulegt fólk. Gamla gráhærða Eilífðin er elst í fjölskyldunni en nýjasti meðlimurinn er litla Augnablik sem er algjör dúlla. Þar að auki er hellingur af frændum og frænkum, systkinum og foreldrum. Skuggi og Sunna eru einmitt systkini og rífast oft ansi mikið. Það er kannski algengt að systkini rífist smá, en þau rífast svo mikið að þau geta eiginlega ekki verið saman í herbergi, aldrei! Nema um jólin. Foreldrar Skugga og Sunnu eru Dagur og Nótt. Það er alveg makalaust hvað þau eru dugleg alltaf. Skipta verkum vel á milli sín og eru alltaf úti um allt. Þau voru eiginlega allt of dugleg og hættu alveg að sjá hvort annað. Nema um jólin auðvitað, en þau koma nú bara einu sinni á ári. Þau ákváðu því að hætta að búa saman. Sunna býr með Degi pabba sínum á meðan Skuggi býr hjá mömmu sinni, Nótt. Þannig hefur það verið í mörg þúsund ár. Og í mörg þúsund ár hafa þau aldrei hist, nema bara um jólin.

Það var einmitt um jólin þegar allir tímamælarnir voru saman komnir heima hjá árstíðunum, en þær voru þær einu sem áttu nógu stórt hús fyrir alla fjölskylduna. Það var rosalega mikill erill í húsinu. Klukkan var orðin tvö og ennþá átti eftir að gera margt tilbúið svo jólin gætu komið. Klukkutími og Ár sáu um að fylla skálar af jólanamminu. Febrúar litli og Vetur voru að raða skónum við útidyrahurðina. Dágóð Stund og Árið gamla stóðu vaktina í eldhúsinu og svo mætti lengi telja. Allir höfðu sitt mikilvæga hlutverk og voru í óða önn að gera allt tilbúið fyrir jólin. Það er að segja allir nema Skuggi litli. Það er nefnilega soldið fyndið að hann Skuggi var stundum stór strákur, en stundum var hann líka ofsalega lítill. Á þessum tíma og í kringum jólin var hann venjulega mjög stór og duglegur, en einmitt þennan aðfangadag var hann með lítið hjarta. Hann sat aleinn inni í stofu við jólatréð og grét. Hann passaði sig að enginn myndi sjá það og vildi helst bara fá að vera í friði. Sunna, systir hans, hafði samt það hlutverk að fara inn í stofu og kveikja á jólakveðjunum í útvarpinu og þegar hún gerði það, þá sá hún hvar Skuggi sat grátandi.

Alla aðra daga hafði hún hlegið og gert grín að honum sem hefði endað í rifrildi og slagsmálum, því eins og þið munið geta þau venjulega aldrei verið í sama herbergi. En þetta var ekkert venjulegur dagur, það voru að koma jól. Sunna settist hjá Skugga og spurði hann af hverju hann væri að gráta. Skuggi vissi alveg að innst inni var Sunna besta systir hans í heiminum. Reyndar vissi hann að hún væri eina systir hans, en það var aukaatriði, hún var best. Hann sagði henni þess vegna hvað var að hrjá hann. Í raun og veru var ekkert að. Hann hafði ekki meitt sig og það hafði enginn verið vondur við hann, heldur var hann bara soldið sár. Hann hafði nefnilega heyrt alla tala um hvað Árið hefði verið yndislegt. Hvað fólk elskaði Desember. Að allir væru að reyna að njóta Augnabliks og hvað það sæi lítið af Degi. Hann heyrði fólkið tala um hvað það vildi óska þess að Vorið færi að láta sjá sig aftur og Sumarið. En verst fannst honum samt að heyra að fólk þyldi ekki allt þetta myrkur. Hvað það væri ógeðslegt og hvað allir væru fegnir því að það færi brátt að minnka. En fyrir ykkur sem ekki vitið, þá eru Skuggi og mamma hans, Nótt, stundum kölluð myrkur. Skuggi sagði Sunnu frá því að honum liði soldið illa því engum virtist líka vel við hann, enginn vildi hafa hann nærri og allir vildu helst óska að hann væri ekki til. Það er nú bara skiljanlegt að Skuggi hafi sest niður og grátið smá fyrst honum leið svona, og það á sjálfan aðfangadag með jólin á næsta leyti.

Þar sem Sunna sat hjá Skugga tók hún fast utan um hann, faðmaði af öllu afli og sagði honum svo að án hans væru allir fátækari. Hún benti honum á að þótt fólk væri úti að leika sér og ferðast á daginn, þá nýtti það myrka nóttina til að fara í ferðalög með Óla Lokbrá, ferðalög sem ættu sér engin takmörk og engar reglur. Ferðalög þar sem sjálft ímyndunaraflið fengi að ráða öllu. Sunna benti honum líka á að þegar mesta myrkrið væri úti, þá söfnuðust fjölskyldumeðlimir saman til að hlýja hver öðrum. Það væru mikið fleiri sem kúrðu saman í myrkrinu en þegar sólin skini. Hún útskýrði svo fyrir Skugga að stjörnurnar sæjust ekki á daginn, en þegar allt yrði svart væri eins og heimsins fegursta listaverk hefði verið málað á himininn. Þegar sýningin virkilega hæfist mætti svo sjá norðurljós og jafnvel stjörnuhröp! Skugga var farið að líða aðeins betur en hélt áfram að snökta. Sunna minntist því næst á kertaljósið: „Að degi til er kertaljós ekkert annað en vaxklumpur með þræði í gegn sem logar. En í mesta skammdeginu er kertaljósið farið að veita hlýju og yl. Það gefur birtu og kveikir von. Það eignast gríðarlega sterkan töframátt; svo sterkan að það er ekki hægt að útskýra hann með orðum“. Skugga var farið að lítast vel á þessar útskýringar og ábendingar og benti síðan sjálfur á að jólatrén væru líka miklu fallegri í myrkrinu. Sunna var sammála því og sagði honum að lokum að án myrkurs myndi ekki nokkur maður geta notið sólarinnar í lífinu, rétt eins og enginn myndi njóta jólanna ef þau væru á hverjum degi.

Fyrr en varði hringdu kirkjuklukkurnar í útvarpinu og jólin gengu í garð.

Óskar Páll Elfarsson
11. des. 2008


» 0 hafa sagt sína skoðun

08.12.2008 18:41:16 / oskar

Nóóóg að gera !

Jóla Óskar vaknar venjulega um miðjan nóvember og í ár var engin breyting þar á... Fyrir vikið er desembermánuður alltaf stútfullur af hlutum sem gleðja hjarta mitt og í stað þunglyndis og ógeðs í þessu veðri og myrkri er alltaf æðislega gaman í desember.



Fyrir rúmri viku vorum við Hrund með sveitasetrið á Þingvöllum ein fyrir okkur. Helgin var hrein út sagt ótrúleg og töfrum líkust. Þarna fjarri allri byggð þar sem ekki einu sinni sést til ljósa næstu húsa höfðum við það ótrúlega gott. Það var eins stjörnubjart og það fræðilega getur orðið og þau orð í íslenskri tungu sem lýsa gætu þeirri fegurð eru ekki til. Eftir smá göngutúr í myrkrinu og að liggja á bakinu og gleyma sér algjörlega fórum við inn eftir að hafa séð ekki minna en sjö stjörnuhröp. Maður hefur oft sagt Vá, en sjaldan hefur það þýtt jafn mikið eins og þarna. Við helgina bættist laufabrauðsbakstur, jólamarkaður, sveitahittingur í hinni sveitinni, videogláp og góður matur. Hreinn unaður alveg hreint.

Við kíktum einnig á tónleika hjá meisturunum í Árstíðum í vikunni. Þetta er eitt það frábærasta band sem til er. 3 ótrúlegar raddir, 3 magnaðir gítarleikarar, einn frábær selló leikari. Gunni Jak, Danni Auðuns, Raggi og Grímsi Rokk eru svo miklir snillingar að ég trúi því stundum varla að maður þekki þvílíka snillinga. Ég hvet alla til að kynna sér bandið og fjölmenna á tónleika með þeim í Fríkirkjunni þann 30. des.


Árstíðir



Ég er líka búinn að vera að dunda mér soldið að mynda á nýjan leik, enda vilja allir fá jólakortamyndir af krökkunum sínum. Enn er möguleiki að troða inn einhverjum tökum ef áhugi er fyrir hendi. Með þeirra sem kíktu í heimsókn í stúdíóið var Aldís Elfa, littla skvísan hennar systu. Það er nú ekkert leiðinlegt að fá svona kríli í heimsókn.



Aldís Elfa



Um helgina var jólahlaðborð með vinnunni. Ofsalega grand og flott á Hótel Glym í Hvalfirði. Sem hefði verið aaaalgjör snilld ef rútan hefði ekki bilað í klukkutíma á heimleiðinni. Eða... jú, þetta var samt algjör snilld. Útaf þessu tilefni var haldin leynivinavika í vikunni og ég náði að gera ýmislegt sniðugt, best var held ég að setja vísu til leynivinar míns í smáauglýsingar DV. En talandi um þær auglýsingar þá eru þær stórskemmtilegar. Þar er búin að birtast í rúma viku auglýsing þess efnis að hægt sé að hringja og panta sér jólasvein og þar gaf ég upp númerið hennar Hrundar, og svo er auðvitað hægt að leggjast í svona einkahúmor, sem auðvitað ekkert allir skilja....


Andri og þessi blessaði hundur hans...


Um helgina fannst okkur ekki nóg að skella okkur á jólahlaðborð, jólarölt, jólabíltúr, jólaverslun, jólagjafakaup og jólamyndaáhorf. Við skelltum okkur líka á Jólatónleika Bjögga Halldórs. Það var ekkert smá ótrúlega æðislega frábært. Virkilega vel að því staðið á allan hátt og einstaklega færir listamenn að syngja í mann jólaandanum.


Það er semsagt hörkustuð og margt að gerast, margt búið og margt framundan. Til dæmis blasir við á næsta leyti fleiri myndatökur, heimsókn frá litla frænda úr sveitinni í heila helgi, Árstíðartónleikarnir, áramótagrímuparty, sinfóníutónleikar og svo auðvitað að hitta allt þetta ótrúlega æðislega skemmtilega fólk sem maður þekkir í útlöndum sem sniglast heim um jólin. Algjör snilld !




» 10 hafa sagt sína skoðun

24.11.2008 12:56:35 / oskar

Óöld ?



Látum eina mynd tala 1000 orð ...





» 16 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 14
Óskar Páll Elfarsson
photo@oskarpall.com Tek að mér ýmis ljósmyndaverkefni, kennslu eða fyrirlestra. Hafðu samband.
Ljósmyndir
oskarpall. Get yours at bighugelabs.com/flickr
Heimsóknir
Í dag:  23  Alls: 90390
Leitarbox